Korngarðar 1

Verknúmer : SN150411

126. fundur 2015
Korngarðar 1, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 29. október 2015 um samþykkt borgarráðs s.d. varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæðis, lóðarinnar að Korngörðum 1.



123. fundur 2015
Korngarðar 1, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar, dags. 20. júlí 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæði vegna lóðar nr. 1 við Korngarða. Í breytingunni felst að bæta við byggingarreit sunnan megin á lóð nr. 1 við Korngarða að lóðarmörkum Klettagarða 4, samkvæmt uppdrætti Dap ehf., dags. 3. september 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 10. september til og með 8. október 2015. Engar athugasemdir bárust.

Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


558. fundur 2015
Korngarðar 1, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar, dags. 20. júlí 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæði vegna lóðar nr. 1 við Korngarða. Í breytingunni felst að bæta við byggingarreit sunnan megin á lóð nr. 1 við Korngarða að lóðarmörkum Klettagarða 4, samkvæmt uppdrætti Dap ehf., dags. 25. júní 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 10. september til og með 8. október 2015. Engar athugasemdir bárust.


Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs

553. fundur 2015
Korngarðar 1, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. ágúst 2015 var lögð fram umsókn Guðmundar Oddar Víðissonar, dags. 20. júlí 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæði vegna lóðar nr. 1 við Korngarða. Í breytingunni felst að bæta við byggingarreit sunnan megin á lóð nr. 1 við Korngarða að lóðarmörkum Klettagarða 4, samkvæmt uppdrætti Dap ehf., dags. 25. júní 2015. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Klettagörðum 4 og 6, Korngörðum 2 og Skarfagarði 2.

549. fundur 2015
Korngarðar 1, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 31. júlí 2015 var lögð fram umsókn Guðmundar Oddar Víðissonar dags. 20. júlí 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæði vegna lóðar nr. 1 við Korngarða. Í breytingunni felst að bæta við byggingarreit sunnan megin á lóð nr. 1 við Korngarða að lóðarmörkum Klettagarða 4, samkvæmt uppdrætti Dap ehf., dags. 25. júní 2015. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.

Frestað. Umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa.

548. fundur 2015
Korngarðar 1, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Guðmundar Oddar Víðissonar dags. 20. júlí 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæði vegna lóðar nr. 1 við Korngarða. Í breytingunni felst að bæta við byggingarreit sunnan megin á lóð nr. 1 við Korngarða að lóðarmörkum Klettagarða 4, samkvæmt uppdrætti Dap ehf., dags. 25. júní 2015.

Vísað til meðferðar verkefnisstjóra.