Ránargata 29A

Verknúmer : SN150342

113. fundur 2015
Ránargata 29A, kæra 45/2015, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. júní 2015 ásamt kæru, þar sem kært er byggingarleyfi vegna framkvæmda við lóð nr. 29a við Ránargötu. Í kærunni er gerð krafa um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 23. júní 2015. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 2. júlí 2015. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þ. 14. október 2014 fyrir Ránargötu 29a.



111. fundur 2015
Ránargata 29A, kæra 45/2015, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. júní 2015 ásamt kæru, þar sem kært er byggingarleyfi vegna framkvæmda við lóð nr. 29a við Ránargötu. Í kærunni er gerð krafa um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 23. júní 2015.

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra