Suðurlandsbraut 8 og 10

Verknúmer : SN150314

114. fundur 2015
Suðurlandsbraut 8 og 10, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 17. júlí 2015 vegna samþykktar borgarráðs 16. júlí 2015 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 8 og 10 við Suðurlandsbraut.



113. fundur 2015
Suðurlandsbraut 8 og 10, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Eikar fasteignafélags hf. dags. 2. júní 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 8 og 10 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst að byggingarreitir lóðanna sem eru að hluta til sjö hæða og hluta til tveggja hæða verða sjö hæða, sjöunda hæð verði inndregin, byggja tengiganga milli húsa á efri hæðum, nýjum byggingarreit fyrir 4. og 5. hæð er komið fyrir á vesturhlið hússins á lóð nr. 10 of.l., samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 28. maí 2015. Einnig er lögð fram yfirlýsing Eikar Fasteignafélags hf. dags. 13. maí 2015 vegna afnota af lóð. Lögð fram umsögn O.R., dags. 8. júlí 2015.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.


545. fundur 2015
Suðurlandsbraut 8 og 10, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. júní 2015 var lögð fram umsókn Eikar fasteignafélags hf. dags. 2. júní 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 8 og 10 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst að byggingarreitir lóðanna sem eru að hluta til sjö hæða og hluta til tveggja hæða verða sjö hæða, sjöunda hæð verði inndregin, byggja tengiganga milli húsa á efri hæðum, nýjum byggingarreit fyrir 4. og 5. hæð er komið fyrir á vesturhlið hússins á lóð nr. 10 of.l., samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 28. maí 2015. Einnig er lögð fram yfirlýsing Eikar Fasteignafélags hf. dags. 13. maí 2015 vegna afnota af lóð. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.
Leggja þarf fram samþykki meðlóðarhafa fyrir breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar.


541. fundur 2015
Suðurlandsbraut 8 og 10, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Eikar fasteignafélags hf. dags. 2. júní 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 8 og 10 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst að byggingarreitir lóðanna sem eru að hluta til sjö hæða og hluta til tveggja hæða verða sjö hæða, sjöunda hæð verði inndregin, byggja tengiganga milli húsa á efri hæðum, nýjum byggingarreit fyrir 4. og 5. hæð er komið fyrir á vesturhlið hússins á lóð nr. 10 ofl., samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 28. maí 2015. Einnig er lögð fram yfirlýsing Eikar Fasteignafélags hf. dags. 13. maí 2015 vegna afnota af lóð.

Vísað til meðferðar verkefnisstjóra.