Rauðagerði

Verknúmer : SN150267

120. fundur 2015
Rauðagerði, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Rauðagerðis. Í breytingunni felst að fækka gestabílastæðum úr tveimur í eitt og færa bílastæðið á annan stað í botnlanga götunnar, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. júní 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. júní til og með 3. júlí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Draupnir lögfr. f.h. Sigþórs Sigurjónssonar, dags. 16. júní 2015, ásamt viðbótargögnum, Guðrún Guðjónsdóttir og Benedikt Þórisson, dags. 30. júní 2015, Helgi K. Pálsson, dags. 3. júlí 2015, undirskrift íbúa að Rauðagerði 41 - 59 sem fengu sent kynningarbréf, dags. 29. júní 2015 og Guðmundur G. Þórarinsson, dags. 2. júlí 2015. Eftir að athugasemdarfresti lauk barst athugasemd Lausna ehf. f.h. Helga K. Pálssonar, dags. 10. júlí 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2015.

Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagráð fellst ekki á breytinguna með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2015.



555. fundur 2015
Rauðagerði, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Rauðagerðis. Í breytingunni felst að fækka gestabílastæðum úr tveimur í eitt og færa bílastæðið á annan stað í botnlanga götunnar, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. maí 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. júní til og með 3. júlí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Draupnir lögfr. f.h. Sigþórs Sigurjónssonar, dags. 16. júní 2015, ásamt viðbótargögnum, Guðrún Guðjónsdóttir og Benedikt Þórisson, dags. 30. júní 2015, Helgi K. Pálsson, dags. 3. júlí 2015, undirskrift íbúa að Rauðagerði 41 - 59 sem fengu sent kynningarbréf, dags. 29. júní 2015 og Guðmundur G. Þórarinsson, dags. 2. júlí 2015. Eftir að athugasemdarfresti lauk barst athugasemd Lausna ehf. f.h. Helga K. Pálssonar, dags. 10. júlí 2015.

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

546. fundur 2015
Rauðagerði, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Rauðagerðis. Í breytingunni felst að fækka gestabílastæðum úr tveimur í eitt og færa bílastæðið á annan stað í botnlanga götunnar, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. maí 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. júní til og með 3. júlí 2015.
Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Draupnir lögfr. f.h. Sigþórs Sigurjónssonar dags. 16. júní 2015 ásamt viðbótargögnum, Guðrún Guðjónsdóttir og Benedikt Þórisson, dags. 30. júní 2015, Helgi K. Pálsson, dags. 3. júlí 2015, undirskrift íbúa að Rauðagerði 41 - 59 sem fengu sent kynningarbréf, dags. 29. júní 2015, Guðmundur G. Þórarinsson, dags. 2. júlí 2015

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

540. fundur 2015
Rauðagerði, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Rauðagerðis. Í breytingunni felst að fækka gestabílastæðum úr tveimur í eitt og færa bílastæðið á annan stað í botnlanga götunnar, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. maí 2015.

Lagfærð bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 8. maí sl. Ný bókun:
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Rauðagerði 41, 43, 45, 47, 49, 51, 53, 55, 57 og 59.



537. fundur 2015
Rauðagerði, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Rauðagerðis. Í breytingunni felst að fækka gestabílastæðum úr tveimur í eitt og færa bílastæðið á annan stað í botnlanga götunnar, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. maí 2015.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Rauðagerði nr. 49, 51,53,57 og 59