Úlfarsárdalur, hverfi 4

Verknúmer : SN150263

110. fundur 2015
Úlfarsárdalur, hverfi 4, breyting á afmörkum deiliskipulags
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 28. maí 2015 um samþykki borgarráðs 21. maí 2015 varðandi auglýsingu um breytingu á afmörkun deiliskipulags Úlfarsárdals, fyrir hverfi 4.



106. fundur 2015
Úlfarsárdalur, hverfi 4, breyting á afmörkum deiliskipulags
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á afmörkun deiliskipulags Úlfarsárdals fyrir hverfi 4. Í breytingunni felst að lóðir nr. 118-120 og 122-124 ásamt 124A við Úlfarsárbraut, sem eru innan marka deiliskipulags hverfis 4 koma til með að tilheyra deiliskipulagi útivistasvæðisins í Úlfarsárdal. Samtímis er samliggjandi mörkum deiliskipulags útivistasvæðisins breytt þannig að áðurnefndar lóðir falla undir það deiliskipulag, samkvæmt uppdr. Björn Ólafs ark. og VA arkitekta ehf. dags. 7. maí 2015.

Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.


537. fundur 2015
Úlfarsárdalur, hverfi 4, breyting á afmörkum deiliskipulags
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á afmörkun deiliskipulags Úlfarsárdals fyrir hverfi 4. Í breytingunni felst að lóðir nr. 118-120 og 122-124 ásamt 124A við Úlfarsárbraut, sem eru innan marka deiliskipulags hverfis 4 koma til með að tilheyra deiliskipulagi útivistasvæðisins. Samtímis er samliggjandi mörkum deiliskipulags útivistasvæðisins breytt þannig að áðurnefndar lóðir falla undir það deiliskipulag, samkvæmt uppdr. Björn Ólafs ark. og VA arkitekta ehf. dags. 7. maí 2015.
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs