Bólstaðarhlíð 47, Háteigsskóli

Verknúmer : SN150194

107. fundur 2015
Bólstaðarhlíð 47, Háteigsskóli, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 30. apríl 2015 um samþykki borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi lóðar númer 47 við Bólstaðarhlíð, lóð Háteigsskóla.



103. fundur 2015
Bólstaðarhlíð 47, Háteigsskóli, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Reykjavíkurborgar dags. 9. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 47 við Bólstaðarhlíð, Háteigsskóli. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit suðvesturhluta lóðar svo koma megi fyrir þriðju færanlegu kennslustofunni, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 9. apríl 2015. Einnig er lagt fram umboð skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 10. apríl 2015.

Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.




534. fundur 2015
Bólstaðarhlíð 47, Háteigsskóli, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Reykjavíkurborgar dags. 9. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 47 við Bólstaðarhlíð, Háteigsskóli. Í breytingunni felst stækkun lóðar Háteigsskóla um 200m2 til suðvestur ásamt stækkun á byggingarreit suðvesturhluta lóðar svo koma megi fyrir þriðju færanlegu kennslustofunni, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 9. apríl 2015. Einnig er lögð fram yfirlýsing vegna breyttra lóðamarka á lóð kennaraháskólans dags. 26. febrúar 2015 umboð skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 10. apríl 2015.

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.