Austurbakki 2, reitur 1 og 2

Verknúmer : SN150169

102. fundur 2015
Austurbakki 2, reitur 1 og 2, (fsp) breyta greinargerð
Lögð fram fyrirspurn Landstólpa Þróunarfélags ehf. dags. 24. mars 2015 um breytingu í greinargerð varðandi uppbrot húshliða í Reykjastræti, samkvæmt tillögu PK-arkitekta ehf. dags. 24. mars 2015. Einnig er lagt fram bréf Arnhildar Pálmadóttur ark. f.h. Landstólpa Þróunarfélags ehf. dags. 24. mars 2015.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri skipulagsfulltrúa tekur sæti undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við fyrirspurnina, á eigin kostnað.

533. fundur 2015
Austurbakki 2, reitur 1 og 2, (fsp) breyta greinargerð
Lögð fram fyrirspurn Landstólpa Þróunarfélags ehf um breytingu í greinargerð varðandi uppbrot húshliða í Reykjastræti.
Kynna formanni umhverfis- og skipulagsráðs.