Útilistaverk

Verknúmer : SN150160

125. fundur 2015
Útilistaverk, uppsetning myndlistaverka á lóð Safnahússins
Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 17. febrúar 2015 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á erindi verkefnisstjórnar nýrrar grunnsýningar í Safnahúsi um uppsetningu myndlistaverks á lóð Safnshússins dags. 20. janúar 2015. Einnig er lögð fram umsögn menningar- og ferðamálasviðs dags. 11. febrúar 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. október 2015.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. október 2015 samþykkt.

532. fundur 2015
Útilistaverk, uppsetning myndlistaverka á lóð Safnahússins
Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 17. febrúar 2015 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á erindi verkefnisstjórnar nýrrar grunnsýningar í Safnahúsi um uppsetningu myndlistaverks á lóð Safnshússins dags. 20. janúar 2015. Einnig er lögð fram umsögn menningar- og ferðamálasviðs dags. 11. febrúar 2015. Óskað er eftir að umsögn berist innan þriggja vikna.

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs