Reykjavíkurflugvöllur

Verknúmer : SN140361

131. fundur 2015
Reykjavíkurflugvöllur, kæra 59/2014, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. júlí 2014 ásamt kæru dags. 3. júlí 2014 þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar dags. 1. apríl s.á. að breyta deiliskipulagi fyrir Reykjavíkurflugvöll. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðsstjóra., dags. 14. júlí 2014 og 19. nóvember 2015. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 17. desember 2015. Úrskurðarorð: Hið kærða deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar sem tók gildi með auglýsingu nr. 539/2014 í B-deild Stjórnartíðinda 6. júní 2014, er fellt úr gildi.

málsgögn
auglýstur uppdráttur
samþykktur uppdráttur

Fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir bókar:"Niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er í samræmi við ábendingar og bókanir Framsóknar og flugvallarvina síðustu 14 mánuðina í umhverfis- og skipulagsráði, borgarráði og borgarstjórn þess efnis að málsmeðferð deiliskipulagsins hafi ekki verið í samræmi við ákvæði skipulagslaga þar sem breytingar voru gerðar eftir samþykki deiliskipulagsins í borgarstjórn. Ákvæði skipulagslaga eru mjög skýr að slík málsmeðferð er ekki lögum samkvæmt. Meirihluti borgarstjórnar, þ.e. fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna ákváðu hins vegar að hlusta hvorki á ábendingar okkar né fylgja skýrum lagafyrirmælum og viðhafa vandaða stjórnsýsluhætti og gerum við alvarlegar athugasemdir við slík vinnubrögð".

129. fundur 2015
Reykjavíkurflugvöllur, kæra 59/2014, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. júlí 2014 ásamt kæru dags. 3. júlí 2014 þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar dags. 1. apríl s.á. að breyta deiliskipulagi fyrir Reykjavíkurflugvöll. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðsstjóra., dags. 14. júlí 2014 og 19. nóvember 2015.




73. fundur 2014
Reykjavíkurflugvöllur, kæra 59/2014, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. júlí 2014 ásamt kæru dags. 3. júlí 2014 þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar dags. 1. apríl s.á. að breyta deiliskipulagi fyrir Reykjavíkurflugvöll. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra., dags. 14. júlí 2014.




72. fundur 2014
Reykjavíkurflugvöllur, kæra 59/2014, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. júlí 2014 ásamt kæru dags. 3. júlí 2014 þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar dags. 1. apríl s.á. að breyta deiliskipulagi fyrir Reykjavíkurflugvöll.

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.