Skógarvegur 12-16

Verknúmer : SN140270

73. fundur 2014
Skógarvegur 12-16, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 10. júlí 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. varðandi auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi neðan Sléttuvegar vegna lóðarinnar Skógarvegur 12-16.



72. fundur 2014
Skógarvegur 12-16, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Varmárbyggðar ehf. dags. 27. maí 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi neðan Sléttuvegar vegna lóðarinnar nr. 12-16 við Skógarveg. Í breytingunni felst fjölgun íbúða og aukning á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar arkitektar ehf. dags. 27. maí 2014.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri sat fundinn undir þessum lið
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Vísað til borgarráðs.


493. fundur 2014
Skógarvegur 12-16, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Varmárbyggðar ehf. dags. 27. maí 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi neðan Sléttuvegar vegna lóðarinnar nr. 13-14 við Skógarveg. Í breytingunni felst fjölgun íbúða og aukning á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar arkitektar ehf. dags. 27. maí 2014.

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.