Verndunarsvæði vatnsbóla

Verknúmer : SN140001

53. fundur 2014
Verndunarsvæði vatnsbóla, framkvæmdaleyfi á Gvendarbrunnasvæðinu
Á fundi skipulagsfulltrúa 3. janúar 2014 var lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 2. janúar 2013 um framkvæmdaleyfi til að bora nýja vinnsluholu á Gvendarbrunnasvæðinu. Einnig er lögð fram mynd af staðsetningu vinnsluholu og verklýsing ódags. Umsókninni var vísað til umsagnar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 21. janúar 2014 og drögum að starfsleyfi fyrir Orkuveituna.

Samþykkt með vísan til 2. mgr. 12. gr. samþykkar um umhverfis- og skipulagsráð og með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar.

477. fundur 2014
Verndunarsvæði vatnsbóla, framkvæmdaleyfi á Gvendarbrunnasvæðinu
Á fundi skipulagsfulltrúa 3. janúar 2014 var lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 2. janúar 2013 um framkvæmdaleyfi til að bora nýja vinnsluholu á Gvendarbrunnasvæðinu. Einnig er lögð fram mynd af staðsetningu vinnsluholu og verklýsing ódags. Umsókninni var vísað til umsagnar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 21. janúar 2014 og drögum að starfsleyfi fyrir Orkuveituna.

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs

475. fundur 2014
Verndunarsvæði vatnsbóla, framkvæmdaleyfi á Gvendarbrunnasvæðinu
Á fundi skipulagsfulltrúa 3. janúar 2014 var lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 2. janúar 2013 um framkvæmdaleyfi til að bora nýja vinnsluholu á Gvendarbrunnasvæðinu. Einnig er lögð fram mynd af staðsetningu vinnsluholu og verklýsing ódags. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.

Vísað til umsagnar heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

473. fundur 2014
Verndunarsvæði vatnsbóla, framkvæmdaleyfi á Gvendarbrunnasvæðinu
Lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 2. janúar 2013 um framkvæmdaleyfi til að bora nýja vinnsluholu á Gvendarbrunnasvæðinu. Einnig er lögð fram mynd af staðsetningu vinnsluholu.

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.