Birkimelur 3

Verknúmer : SN130605

52. fundur 2014
Birkimelur 3, breyting á deiliskipulagi Háskóla Íslands vestan Suðurgötu
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 23. janúar 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi HÍ vestan Suðurgötu, lóð númer 3 við Birkimel.



50. fundur 2014
Birkimelur 3, breyting á deiliskipulagi Háskóla Íslands vestan Suðurgötu
Lagt fram erindi Blómatorgsins ehf. dags. 19. desember 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vestan Suðurgötu vegna lóðarinnar nr. 3 við Birkimel. Í breytingunni felst breytt lögun byggingarreits samkvæmt uppdr. Magnúsar Skúlasonar ark. dags. 6. janúar 2014.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.


473. fundur 2014
Birkimelur 3, breyting á deiliskipulagi Háskóla Íslands vestan Suðurgötu
Lögð fram fyrirspurn Blómatorgsins ehf. dags. 19. desember 2013 varðandi breytingu á lögun byggingarreits lóðarinnar nr. 3 við Birkimel, Blómatorgið, samkvæmt uppdr. Magnúsar Skúlasonar ark. dags. 8. desember 2013.

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.