Austurhöfn

Verknúmer : SN130479

70. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 6. júní 2014 vegna samþykktar borgarráðs frá 5. júní 2014 um breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar.



69. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2014 var lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags 7. maí 2014 ásamt lagfærðum uppdrætti dags. 11. desember 2013 síðast breyttur 30. apríl 2014. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. maí 2014.



Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


68. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2014 var lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags 7. maí 2014 ásamt lagfærðum uppdrætti dags. 11. desember 2013 síðast breyttur 30. apríl 2014. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2014.

Halldóra Hrólfsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2014 samþykkt.



491. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2014 var lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags 7. maí 2014 ásamt lagfærðum uppdrætti dags. 11. desember 2013 síðast breyttur 30. apríl 2014. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

490. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags 7. maí 2014 ásamt lagfærðum uppdrætti dags. 11. desember 2013 síðast breyttur 30. apríl 2014.

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

63. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 28. mars 2014 um samþykkt borgarráðs dags. 27. mars 2014 vegna breytinga á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10. Í breytingunni felst að legu Geirsgötu er breytt þannig að reitur nr. 2 minnkar og reitir nr. 5 og 6 stækka ásamt öðrum minniháttar breytingum.



60. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10. Í breytingunni felst að legu Geirsgötu er breytt þannig að reitur nr. 2 minnkar og reitir nr. 5 og 6 stækka ásamt öðrum minniháttar breytingum, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Batterísins Arkitekta dags. 11. desember 2013 breyttur 21. mars 2014 og sneiðingum Batterísins Arkitekta dags. 11. desember 2013. Tillagan var auglýst frá 23. desember 2013 til og með 3. febrúar 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Elvar Bjarnason dags. 14. janúar 2014, Stólpar ehf. dags. 27. janúar 2014, Harpa, tónl. og ráðstefnuhús dags. 27. janúar 2014, Seltjarnarnesbær dags. 29. janúar 2014, Seltjarnarnesbær, skipulags- og umferðarnefnd dags. 31. janúar 2014, JP lögmenn fh. Landbakka dags. 1. febrúar 2014, íbúasamtök miðborgar dags. 3. febrúar 2014, íbúasamtök vesturbæjar dags. 6. febrúar 2014, Hilmar Þór Björnsson arkitekt dags. 6. febrúar 2014 og Dennis Davíð Jóhannesson dags. 7. febrúar 2014. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2014.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri og og Hrólfur Jónsson skrifstofustjóri sitja fundinn undir þessum lið.

Samþykkt með vísan til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. mars 2014.
Fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason. Elsa Hrafnhildur Yeoman og Karl Sigurðsson og fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Kristín Soffía Jónsdóttir og fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Sóley Tómasdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun :
"Umhverfis- og skipulagsráð fagnar breyttu skipulagi á Austurhafnarreitunum. Mikið hefur verið dregið úr uppbyggingarheimildum; hæðir húsanna hafa verið aðlagaðar betur að umhverfinu og gatnamót Kalkofnsvegar og Geirsgötu eru í samræmi við gildandi rammaskipulag af svæðinu og samgöngustefnu borgarinnar í aðalskipulaginu 2010-2030. Það skal þó áréttað að byggingarmagn á svæðinu er til komið vegna eldri deiliskipulagsáætlana. Hefði ráðið ekki verið bundið af þeim, má vera ljóst að umfangið hefði orðið smærra í sniðum. Ráðið leggur áherslu á að vandað verði til verka þegar kemur að útliti og hönnun bygginganna".
Vísað til borgarráðs.




58. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10. Í breytingunni felst að legu Geirsgötu er breytt þannig að reitur nr. 2 minnkar og reitir nr. 5 og 6 stækka ásamt öðrum minniháttar breytingum, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti og sneiðingum Batterísins Arkitekta dags. 11. desember 2013. Tillagan var auglýst frá 23. desember 2013 til og með 3. febrúar 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Elvar Bjarnason dags. 14. janúar 2014, Stólpar ehf. dags. 27. janúar 2014, Harpa, tónl. og ráðstefnuhús dags. 27. janúar 2014, Seltjarnarnesbær dags. 29. janúar 2014, Seltjarnarnesbær, skipulags- og umferðarnefnd dags. 31. janúar 2014, JP lögmenn fh. Landbakka dags. 1. febrúar 2014, íbúasamtök miðborgar dags. 3. febrúar 2014, íbúasamtök vesturbæjar dags. 6. febrúar 2014, Hilmar Þór Björnsson arkitekt dags. 6. febrúar 2014 og Dennis Davíð Jóhannesson dags. 7. febrúar 2014.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri situr fundinn undir þessum lið.

Kynnt drög að umsögn skipulagsfulltrúa
Frestað.


54. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10. Í breytingunni felst að legu Geirsgötu er breytt þannig að reitur nr. 2 minnkar og reitir nr. 5 og 6 stækka ásamt öðrum minniháttar breytingum, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti og sneiðingum Batterísins Arkitekta dags. 11. desember 2013. Tillagan var auglýst frá 23. desember 2013 til og með 3. febrúar 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Elvar Bjarnason dags. 14. janúar 2014, Stólpar ehf. dags. 27. janúar 2014, Harpa, tónl. og ráðstefnuhús dags. 27. janúar 2014, Seltjarnarnesbær dags. 29. janúar 2014, Seltjarnarnesbær, skipulags- og umferðarnefnd dags. 31. janúar 2014, JP lögmenn fh. Landbakka dags. 1. febrúar 2014, íbúasamtök miðborgar dags. 3. febrúar 2014, íbúasamtök vesturbæjar dags. 6. febrúar 2014, Hilmar Þór Björnsson arkitekt dags. 6. febrúar 2014 og Dennis Davíð Jóhannesson dags. 7. febrúar 2014.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Athugasemdir kynntar.




478. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10. Í breytingunni felst að legu Geirsgötu er breytt þannig að reitur nr. 2 minnkar og reitir nr. 5 og 6 stækka ásamt öðrum minniháttar breytingum, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti og sneiðingum Batterísins Arkitekta dags. 11. desember 2013. Tillagan var auglýst frá 23. desember 2013 til og með 3. febrúar 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Elvar Bjarnason dags. 14. janúar 2014, Stólpar ehf. dags. 27. janúar 2014, Harpa, tónl. og ráðstefnuhús dags. 27. janúar 2014, Seltjarnarnesbær dags. 29. janúar 2014, Seltjarnarnesbær, Þórður Búason dags. 31. janúar 2014, JP lögmenn, Óskar Sigurðsson dags. 1. febrúar 2014, íbúasamtök miðborgar dags. 3. febrúar 2014, íbúasamtök vesturbæjar, dags. 6. febrúar 2014, Hilmar Þór Björnsson arkit. dags. 6. febrúar 2014, Dennis Davíð Jóhannesson dags. 7. febrúar 2014,

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

49. fundur 2014
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. desember 2013 vegna samþykktar borgarráðs frá 19. desember 2013 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar.



47. fundur 2013
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10. Í breytingunni felst að legu Geirsgötu er breytt þannig að reitur nr. 2 minnkar og reitir nr. 5 og 6 stækka ásamt öðrum minniháttar breytingum, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti og sneiðingum Batterísins Arkitekta dags. 11. desember 2013.

Reynir Sigurbjörnsson tekur sæti á fundinum kl. 9:50

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu með sex atkvæðum fulltrúa Besta flokksins Páls Hjaltasonar. Elsu Hrafnhildar Yeoman og Karls Sigurðssonar, fulltrúa Samfylkingarinnar Hjálmars Sveinssonar og Reynis Sigurbjörnssonar og fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Sóleyjar Tómasdóttur

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífil Ingvarsson, Marta Guðjónsdóttir og Óttarr Guðlaugsson sátu hjá við afgreiðslu málsins og bókuðu:
"Hörpureitur, sem nær frá Lækjartorgi að Hörpu, er eitt allra mikilvægasta og viðkvæmasta byggingarsvæðið í Reykjavík. Uppbyggingarheimildir sem ekki hafa enn verið nýttar á reitnum eru um 65.000 fm en fimm stórar byggingar munu verða einkennandi fyrir svæðið. Til að setja það í samhengi er það meira að flatarmáli en verslunarmiðstöðin Kringlan er í dag.
Flestar breytingar sem nú er lagt til að gera á gildandi deiliskipulagi bæta það. Þær snúa m.a. að því að laga skipulagið að þörfum lóðarhafa en stærsta breytingin felst í því að breyta gatnamótum Kalkofnsvegar og Geirsgötu úr Y gatnamótum eins og þau eru í dag í T gatnamót. Sú breyting mun hafa veruleg áhrif á stærðir aðliggjandi lóða á svæðinu. Uppbyggingarheimildir á lóð 2 munu minnka 4.500 fm. og lóð 6 mun stækka.
Allt þetta kjörtímabil hafa legið fyrir hugmyndir um að breyta umræddum gatnamótum en því miður hefur tíminn ekki verið nýttur sem skyldi. Nú þegar fyrir liggur að framkvæmdaaðilar eru tilbúnir til að hefja uppbyggingu er fyrst farið að skoða hvaða afleiðingar breytt umferðarskipulag mun hafa á svæðið og til hvers það mun leiða. Núverandi gatnamót virka prýðilega en enga brýna nauðsyn ber til að breyta þeim og síst af öllu í ljósi þeirrar lagalegu óvissu sem breytingunum mun fylgja.
Fulltrúar S hafa óskað eftir upplýsingum um það hvaða samskipti hafi átt sér stað á milli lóðarhafa og Reykjavíkurborgar vegna þessara breytinga. Ítrekað hefur verið óskað eftir minnispunktum eða fundargerðum en ekki hefur verið orðið við því. Það bendir til þess að samningaumleitanir hafi ekki borið árangur. Ef dregið er úr heimiluðu byggingarmagni með deiliskipulagi skapar það einum lóðarhafa tjón sem þarf að bæta. Eðlilegt er að borgarlögmaður fari yfir það og hver staða Reykjavíkurborgar verður í því sambandi.
Með deiliskipulagsferli sem ekki er betur undirbúið en raun ber vitni eru líkur á að framkvæmdir frestist að óþörfu."

Fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason. Elsa Hrafnhildur Yeoman og Karl Sigurðsson, fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Reynir Sigurbjörnsson og fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Sóley Tómasdóttir bókuðu : "Umhverfis- og skipulagsráð fagnar breyttu skipulagi á Austurhafnarreitunum. Mikið hefur verið dregið úr uppbyggingarheimildum; hæðir húsanna hafa verið aðlagaðar betur að umhverfinu og gatnamót Kalkofnsvegar og Geirsgötu eru í samræmi við gildandi rammaskipulag af svæðinu og samgöngustefnu borgarinnar í aðalskipulaginu 2010-2030. Það skal þó áréttað að byggingarmagn á svæðinu er til komið vegna eldri deiliskipulagsáætlana. Hefði ráðið ekki verið bundið af þeim, má vera ljóst að umfangið hefði orðið smærra í sniðum."
Vísað til borgarráðs.



46. fundur 2013
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10. Í breytingunni felst að legu Geirsgötu er breytt þannig að reitur nr. 2 minnkar og reitir nr. 5 og 6 stækka ásamt öðrum minniháttar breytingum, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta dags. 10. desember 2013.

Deiliskipulagsuppdr. 1.
Deiliskipulagsuppdr. 2.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Sigurður Einarsson arkitekt kynnir tillöguna.
Frestað.



39. fundur 2013
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Lögð fram forsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. október 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1 til 6.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum og kynnir.
Framlögð forsögn samþykkt.






38. fundur 2013
Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi vegna byggingarreita 1, 2, 5, 6, 7, 8 og 10
Lögð fram forsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. október 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna byggingarreita nr. 1 til 6.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum og kynnir.

Frestað.

Júlíus Vífill Ingvarsson víkur af fundi kl. 12:05.
Hildur Sverrisdóttir víkur af fundi kl. 12:30, Óttarr Guðlaugsson tekur sæti á fundinum á sama tíma.