Heiðmörk, rampur fyrir hjólabretti og línuskauta

Verknúmer : SN130441

38. fundur 2013
Heiðmörk, rampur fyrir hjólabretti og línuskauta, styrkumsókn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. september 2013 var lagt fram bréf borgarstjóra dags. 30. júlí 2013 vegna afgreiðslu borgarráðs 11. s.m. á styrkumsókn Brettafélags Reykjavíkur dags. 18. júní sl. vegna byggingar lítils fjölnota ramps í Heiðmörk fyrir hjólabretti og línuskauta. Borgarráð samþykkti að vísa erindinu til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig eru lagðar fram umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 11. október 2013 og heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 15. október 2013.

Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum og kynnir.



Umsagnir skipulagsfulltrúa og Heilbrigðiseftirlits samþykktar.





37. fundur 2013
Heiðmörk, rampur fyrir hjólabretti og línuskauta, styrkumsókn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. september 2013 var lagt fram bréf borgarstjóra dags. 30. júlí 2013 vegna afgreiðslu borgarráðs 11. s.m. á styrkumsókn Brettafélags Reykjavíkur dags. 18. júní sl. vegna byggingar lítils fjölnota ramps í Heiðmörk fyrir hjólabretti og línuskauta. Borgarráð samþykkti að vísa erindinu til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.

Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum og kynnir.

Frestað.

462. fundur 2013
Heiðmörk, rampur fyrir hjólabretti og línuskauta, styrkumsókn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. september 2013 var lagt fram bréf borgarstjóra dags. 30. júlí 2013 vegna afgreiðslu borgarráðs 11. s.m. á styrkumsókn Brettafélags Reykjavíkur dags. 18. júní sl. vegna byggingar lítils fjölnota ramps í Heiðmörk fyrir hjólabretti og línuskauta. Borgarráð samþykkti að vísa erindinu til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.


Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs

460. fundur 2013
Heiðmörk, rampur fyrir hjólabretti og línuskauta, styrkumsókn
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 30. júlí 2013 vegna afgreiðslu borgarráðs 11. s.m. á styrkumsókn Brettafélags Reykjavíkur dags. 18. júní sl. vegna byggingar lítils fjölnota ramps í Heiðmörk fyrir hjólabretti og línuskauta.
Borgarráð samþykkti að vísa erindinu til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs.


Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.