Hamravík 10

Verknúmer : SN130309

26. fundur 2013
Hamravík 10, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 5. júlí 2013 vegna samþykktar borgarráðs 4. júlí 2013 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna lóðarinnar nr. 10 við Hamravík, Kelduskóli.



24. fundur 2013
Hamravík 10, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna lóðarinnar nr. 10 við Hamravík, Kelduskóli. Í breytingunni felst að sameina leikvallarlóð í norðri og skólalóð og setja þar upp boltagerði, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 14. júní 2013.

Rúnar Gunnarsson deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.


448. fundur 2013
Hamravík 10, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna lóðarinnar nr. 10 við Hamravík, Kelduskóli. Í breytingunni felst að sameina leikvallarlóð í norðri og skólalóð og setja þar upp boltagerði, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 14. júní 2013.
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.