Kópavogur

Verknúmer : SN130019

5. fundur 2013
Kópavogur, aðalskipulag 2012-2024
Á fundi skipulagsfulltrúa frá 11. janúar 2013 var lagt fram bréf skipulagsstjóra Kópavogsbæjar dags. 27. desember 2012 um kynningu á tillögu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 ásamt greinargerð. Einnig er lögð fram umsögn verkefnastjóra aðalskipulags Reykjavíkur dags. 4. febrúar 2013.

Haraldur Sigurðsson tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna þegar hún verður auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga.

429. fundur 2013
Kópavogur, aðalskipulag 2012-2024
Á fundi skipulagsfulltrúa frá 11. janúar 2013 var lagt fram bréf skipulagsstjóra Kópavogsbæjar dags. 27. desember 2012 um kynningu á tillögu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Erindinu var vísað til verkefnisstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju.

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs

426. fundur 2013
Kópavogur, aðalskipulag 2012-2024
Lagt fram bréf skipulagsstjóra Kópavogsbæjar dags. 27. desember 2012 um kynningu á tillögu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024.

Vísað til verkefnisstjóra aðalskipulags.