Húsverndarsjóður Reykjavíkur

Verknúmer : SN130006

17. fundur 2013
Húsverndarsjóður Reykjavíkur, úthlutun styrkja 2013
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. maí 2013 vegna samþykktar borgarráðs s.d. um úthlutun styrkja úr húsverndarsjóði.



14. fundur 2013
Húsverndarsjóður Reykjavíkur, úthlutun styrkja 2013
Lögð fram tillaga að úthlutun styrkja úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur fyrir árið 2013.

Margrét Þormar sat fundinn undir þessum lið.



Framlögð tillaga samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


425. fundur 2013
Húsverndarsjóður Reykjavíkur, úthlutun styrkja 2013
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 4.janúar 2013 um tilnefningu í starfshóp um styrki úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur 2013. og tillaga að auglýsingu um styrki.

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

1. fundur 2013
Húsverndarsjóður Reykjavíkur, úthlutun styrkja 2013
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 4. janúar 2013 um tilnefningu í starfshóp um styrki úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur 2013 og tillaga að auglýsingu um styrki.

Samþykkt.
Af hálfu umhverfis- og skipulagsráðs voru tilnefndir í vinnuhóp Hjálmar Sveinsson og Hildur Sverrisdóttir.