Hverfisgata 57

Verknúmer : SN120570

1. fundur 2013
Hverfisgata 57, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 21. desember 2012 um samþykkt borgarráðs 20. desember 2012 um að auglýsa breytingu á deiliskipulagi reits 1.152.5 vegna lóðarinnar nr. 57 við Hverfisgötu.



300. fundur 2012
Hverfisgata 57, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Plús arkitekta varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.152.5 vegna lóðarinnar nr. 57 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst hækkun á húsinu um eina hæð ásamt auknu byggingarmagni á lóðinni samkvæmt uppdrætti Plús arkitekta dags. 18. desember 2012.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 57 við Hverfisgötu þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir. Deiliskipulag lóðanna Hverfisgata 59-61 og Frakkastígs 6b verður tekið til endurskoðunar síðar.
Vísað til borgarráðs.