Kaplaskjól

Verknúmer : SN120437

21. fundur 2013
Kaplaskjól, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27. september 2012 ásamt kæru dags. 24. september 2012 þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi vegna Víðimels 80 / Kaplaskjólsvegar 2 og Meistaravalla 1-3. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 4. des. 2012. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 31. maí 2013. Úrskurðarorð: Ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 11. október 2012 um breytingu á deiliskipulagi Kaplaskjóls í Reykjavík er felld úr gildi

Harri Ormarsson lögfræðingur kynnti

299. fundur 2012
Kaplaskjól, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27. september 2012 ásamt kæru dags. 24. september 2012 þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi vegna Víðimels 80 / Kaplaskjólsvegar 2 og Meistaravalla 1-3. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 4. des. 2012.

Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

295. fundur 2012
Kaplaskjól, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27. september 2012 ásamt kæru dags. 24. september 2012 þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi vegna Víðimels 80 / Kaplaskjólsvegar 2 og Meistaravalla 1-3.

Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu