Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030

Verknúmer : SN120105

266. fundur 2012
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, hverfafundir aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030
Kynnt áætlun um hverfafundi í mars 2012 vegna endurskoðunar aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030.
Samþykkt að efna til opinna funda í öllum hverfum borgarinnar í mars, sbr. framlagða kynningaráætlun. Sjá einnig verklýsingu endurskoðunar aðalskipulagsins sem samþykkt var í skipulagsráði 22. júní 2011.
Á fundunum verða kynnt og rædd drög að megin markmiðum endurskoðunar og vinnutillögur um þróun hverfanna.