Kollagrund 2, Klébergsskóli

Verknúmer : SN110158

238. fundur 2011
Kollagrund 2, Klébergsskóli, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 30. mars 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðar Klébergsskóla á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að staðsetning og fjöldi bílastæða er breytt, samkvæmt uppdrætti Arkitektur.is dags. 28. mars 2011.

Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.

344. fundur 2011
Kollagrund 2, Klébergsskóli, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs dags. 30. mars 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðar Klébergsskóla á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að staðsetning og fjöldi bílastæða er breytt, samkvæmt uppdrætti Arkitektur.is dags. 28. mars 2011.
Vísað til skipulagsráðs.