Sogamýri

Verknúmer : SN110157

451. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Ræða kvörtunarbréf sem borist hafa vegna byggingar Mosku í Sogamýri.



26. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 5. júlí 2013 vegna samþykktar borgarráðs 4. júlí 2013 varðandi endursamþykkt erindis umhverfis- og skipulagsráðs dags. 21. nóvember 2012 á breytingu á deiliskipulagi sogamýrar.


24. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lagt fram til endursamþykktar erindi umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sogamýri. Breytingin felur í sér þrjár nýjar lóðir austan, lóðanna við Suðurlandsbraut 68-70, ásamt hliðrun á göngustíg, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012. Tillagan var auglýst frá 26. apríl til og með 12. júní 2013. Engar athugasemdir bárust.

Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


448. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lagt fram til endursamþykktar erindi umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sogamýri. Breytingin felur í sér þrjár nýjar lóðir austan lóðanna við Suðurlandsbraut 68-70, ásamt hliðrun á göngustíg, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012. Tillagan var auglýst frá 26. apríl til og með 12. júní 2013. Engar athugasemdir bárust.

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.

14. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 11. apríl 2013 um samþykkt borgarráðs s.d. um auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi í Sogamýri.



13. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram til endursamþykktar erindi umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sogamýri. Breytingin felur í sér þrjár nýjar lóðir austan, lóðanna við Suðurlandsbraut 68-70, ásamt hliðrun á göngustíg, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012.


Haraldur Sigurðsson tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu skv. 41. gr., sbr. 4. mgr. 40 gr. með atkvæðum fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Karl Sigurðsson, fulltrúa Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Kristín Soffía Jónsdóttir og fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Sóleyjar Tómasdóttur
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson Gísli Marteinn Baldursson, og Marta Guðjónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.


9. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 22. febrúar 2013 um samþykkt borgarráðs dags. 21. febrúar 2013 vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Sogamýri.



6. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram lýsing skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 7. maí 2012 vegna deiliskipulags í Sogamýri. Einnig lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sogamýri. Breytingin felur í sér þrjár nýjar lóðir austan, lóðanna við Suðurlandsbraut 68-70, ásamt hliðrun á göngustíg, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012.

Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu með atkvæðum fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Karl Sigurðsson, fulltrúa Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Kristín Soffía Jónsdóttir og fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Torfa Hjartarsonar
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Gísli Marteinn Baldursson, Hildur Sverrisdóttir og Marta Guðjónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.


3. fundur 2013
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram lýsing skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 7. maí 2012 vegna deiliskipulags í Sogamýri. Einnig lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sogamýri. Breytingin felur í sér þrjár nýjar lóðir austan, lóðanna við Suðurlandsbraut 68-70, ásamt hliðrun á göngustíg, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. nóvember 2012.

Marta Guðjónsdóttir tók sæti á fundinum kl. 11:53.

Kynnt.

Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri kynnti


277. fundur 2012
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 29. maí 2012 um samþykkt borgarráðs 24. maí á lýsingu á nýju deiliskipulagi fyrir Sogamýri.



273. fundur 2012
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram lýsing skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 7. maí 2012 vegna deiliskipulags í Sogamýri.

Lýsing samþykkt til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar Skipulagsstofnunar, umhverfis- og samgöngusviðs og hverfisráðs Laugardals.

Lýsingin verður aðgengileg á vef skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson sat hjá við afgreiðslu málsins með vísan til fyrri bókana í skipulagsráði um sama mál.


271. fundur 2012
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram drög að lýsingu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. apríl 2011 vegna deiliskipulags á hluta Sogamýri. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Að lokinni kynningu er lýsingin lögð fram að nýju ásamt umsögnum, Skipulagsstofnunar dags. 20. maí 2011, Hverfisráðs Laugardals dags. 15. júní 2011 og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 12. ágúst 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Guðlaugur Einarsson dags. 14. júní 2011.
Frestað.

269. fundur 2012
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram drög að lýsingu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. apríl 2011 vegna deiliskipulags á hluta Sogamýri. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Að lokinni kynningu er lýsingin lögð fram að nýju ásamt umsögnum, Skipulagsstofnunar dags. 20. maí 2011, Hverfisráðs Laugardals dags. 15. júní 2011 og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 12. ágúst 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Guðlaugur Einarsson dags. 14. júní 2011.
Kynnt.

251. fundur 2011
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram drög að lýsingu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. apríl 2011 vegna deiliskipulags á hluta Sogamýri. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Að lokinni kynningu er erindi lagt fram að nýju ásamt umsögnum, Skipulagsstofnunar dags. 20. maí 2011, Hverfisráðs Laugardals dags. 15. júní 2011 og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 12. ágúst 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Guðlaugur Einarsson dags. 14. júní 2011.
Athugasemdir kynntar.

362. fundur 2011
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram drög að lýsingu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. apríl 2011 vegna deiliskipulags á hluta Sogamýri. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Að lokinni kynningu er erindi lagt fram að nýju ásamt umsögnum, Skipulagsstofnunar dags. 20. maí 2011, Hverfisráðs Laugardals dags. 15. júní 2011 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 12. ágúst 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Guðlaugur Einarsson dags. 14. júní 2011.
Kynna formanni skipulagsráðs.

241. fundur 2011
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 5. maí 2011 um samþykkt s.d. um lýsingu á deiliskipulagi fyrir hluta Sogamýrar.


239. fundur 2011
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram drög að lýsingu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. apríl 2011 vegna deiliskipulags á hluta Sogamýri. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.

Lýsing samþykkt til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt að vísa lýsingunni m.a. til umsagnar Skipulagsstofnunar, Hverfisráðs Laugardals og Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur.

Lýsingin verður aðgengileg á vef skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson, Marta Guðjónsdóttir og Jórunn Frímannsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins og óskuðu bókað.
"Lóð sú sem nú er verið að afmarka með nýju deiliskipulagi er á opnu grænu svæði á milli Suðurlandsbrautar og Miklubrautar á móts við Steinahlíð. Ekki hafa fram til þessa verið uppi áform um að heimila uppbyggingu á svæðinu en ljóst má þó vera að komi til þess verða þær byggingar, sem þar rísa, að vera í mjög háum gæðaflokki enda er lega lóðarinnar þannig að hús á henni munu sjálfkrafa verða kennileiti í borginni. Endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur sem ná mun til ársins 2030 er nú langt komin en eitt af þeim svæðum, sem þar er til skoðunar með tilliti til borgarþróunar í framtíðinni, er einmitt það, sem nú er verið að deiliskipuleggja fyrir tilbeiðsluhús. Með því er þrengt verulega að þeim hugmyndum sem eru í vinnslu varðandi nýtingu svæðisins. Það er á skjön við vinnubrögð skipulagsráðs að taka einstakar lóðir út fyrir sviga með þessum hætti og láta heildarhugsun í skipulagi víkja. Á annan tug lóða hafa verið til skoðunar vegna lóðar fyrir tilbeiðsluhús. Margar þeirra henta betur en sú sem hér er til umræðu".

Fulltrúar Besta flokksins; Páll Hjaltason og Elsa Yeoman, Samfylkingarinnar; Hjálmar Sveinsson og Sverrir Bollason ásamt áheyrnarfulltrúa Vinstri Hreyfingarinnar Græns framboðs; Sóley Tómasdóttir, óskuðu bókað.
" Fullrúar Besta flokksins, Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna í skipulagsráði telja undirbúningu vegna deiliskipulags við Sogamýri hafa verið vandaðan enda hefur hann staðið í mörg ár. Á annan tug staða í borginni hafa verið skoðaðir fyrir tilbeiðsluhús. Niðurstaða skipulags- og byggingarsviðs er sú að svæðið við Sogamýri sé besti kosturinn. Fulltrúar Besta flokks, Samfylkingar og Vinstri Grænna eru sammála þessari niðurstöðu og fagna því að loksins hillir undir tillögu að lausn á þessu máli, þó enn eigi sjálfsagt samráð og kynningarferli eftir að eiga sér stað við íbúa borgarinnar."


238. fundur 2011
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram drög að lýsingu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. apríl 2011 vegna deiliskipulags á hluta Sogamýri. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.

Kynnt.

345. fundur 2011
Sogamýri, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram drög að lýsingu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 8. apríl 2011 vegna deiliskipulags á hluta Sogamýri. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.
Vísað til skipulagsráðs.