Hverfisgata 78

Verknúmer : SN100001

195. fundur 2010
Hverfisgata 78, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Helga Hafliðasonar ark. f.h. Hverfis ehf., dags. 21. desember 2009, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna ofanábyggingar á hús nr. 78 við Hverfisgötu skv. uppdráttum, dags. 17. nóvember 2009.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna á eigin kostnað, tillögu að breytingu á deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir ofanábyggingu hússins nr. 78 við Hverfisgötu. Tillagan verður auglýst þegar hún berst.

286. fundur 2010
Hverfisgata 78, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Helga Hafliðasonar ark. f.h. Hverfis ehf., dags. 21. des. 2009, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna ofanábyggingar á hús nr. 78 við Hverfisgötu skv. uppdráttum, dags. 17. nóv. 2009.
Vísað til skipulagsráðs.