Laugavegur/Vatnsstígur

Verknúmer : SN090012

214. fundur 2010
Laugavegur/Vatnsstígur, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn arkiBúllunar dags. 12. janúar 2009 að breytingu á deiliskipulagi Laugavegar/Vatnsstígs Í breytingunni felst möguleg uppbygging á horni Laugavegs og Vatnsstígs samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum dags. 1.apríl 2009.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við að unnin verði tillaga að breytingu á deiliskipulagi vegna lóðanna á horni Laugavegs og Vatnsstígs til samræmis við þær hugmyndir sem fram koma í fyrirliggjandi erindi. Embætti skipulagsstjóra er jafnframt falið að upplýsa lóðarhafa um afgreiðsluna.

169. fundur 2009
Laugavegur/Vatnsstígur, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn arkiBúllunar dags. 12. janúar 2009 að breytingu á deiliskipulagi Laugavegar/Vatnsstígs Í breytingunni felst möguleg uppbygging á horni Laugavegs og Vatnsstígs samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum dags. 1.apríl 2009.
Hólmfríður Jónsdóttir arkitekt frá arkiBúllunni kynnti.

160. fundur 2009
Laugavegur/Vatnsstígur, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn arkiBúllunar dags. 12. janúar 2009 að breytingu á deiliskipulagi Laugavegar/Vatnsstígs Í breytingunni felst möguleg uppbygging á horni Laugavegs og Vatnsstígs samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum dags.
Hólmfríður Jónsdóttir og Arna Ösp Guðbrandsdóttir arkitektar frá arkiBúllunni kynntu.