Norðurfell 17-19, Fellaskóli

Verknúmer : SN080746

159. fundur 2009
Norðurfell 17-19, Fellaskóli, breyting á deiliskipulagi vegna boltagerðis o.fl.
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 8. janúar 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð Fellaskóla að Norðurfelli 17 - 19.


158. fundur 2008
Norðurfell 17-19, Fellaskóli, breyting á deiliskipulagi vegna boltagerðis o.fl.
Lögð fram umsókn Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 11. des. 2008, um breytingu á deiliskipulagi lóðar Fellaskóla skv. uppdrætti, dags. 9. des. 2008. Breytingin felst m.a. í staðsetningu boltagerðis og breytingu á bílastæðum.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.
Vísað til borgarráðs.


237. fundur 2008
Norðurfell 17-19, Fellaskóli, breyting á deiliskipulagi vegna boltagerðis o.fl.
Lögð fram umsókn framkvæmda- og eignasviðs, dags. 11. des. 2008, um breytingu á deiliskipulagi lóðar Fellaskóla skv. uppdrætti, dags. 9. des. 2008. Breytingin felst m.a. í staðsetningu boltagerðis og breytingu á bílastæðum.
Vísað til skipulagsráðs.