Hólmsheiði/Fjárborg/Almannadalur

Verknúmer : SN080671

231. fundur 2008
Hólmsheiði/Fjárborg/Almannadalur, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs dags. 1. október 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi á Hólmsheiði Fjárborg. Í breytingunni felst að lóðamörkum Fjárborgar er breytt samkv. meðfylgjandi uppdrætti Landslags dags. 31. október 2008.
Vísað til skipulagsráðs.

153. fundur 2008
Hólmsheiði/Fjárborg/Almannadalur, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs dags. 1. október 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi á Hólmsheiði Fjárborg. Í breytingunni felst að lóðamörkum Fjárborgar er breytt samkv. meðfylgjandi uppdrætti Landslags dags. 31. október 2008. Einnig lagt fram bréf Fjáreigendafélags Reykjavíkur dags. 4. nóvember 2008.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að fella niður grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa og Reykjavíkurborgar.