Skildinganes

Verknúmer : SN080522

152. fundur 2008
Skildinganes, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 27. ágúst 2008 vegna kæru dags. 25. júlí og 6. ágúst 2008 þar sem kærðar eru aðgerðir Reykjavíkurborgar á grænu svæði milli Bauganess, Bauganestanga og Skildinganess. Úrskurðarorð: Máli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.


145. fundur 2008
Skildinganes, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar dags. 27. ágúst 2008 vegna kæru Pálma Jónassonar dags. 6. ágúst 2008 þar sem kærðar eru aðgerðir borgarinnar á grænu svæði milli Bauganess, Bauganestanga og Skildinganess í Reykjavík.


143. fundur 2008
Skildinganes, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 1. ágúst 2008 ásamt kæru dags. 25. júlí þar sem kærðar eru aðgerðir Reykjavíkurborgar á grænu svæði milli Bauganess, Bauganestanga og Skildinganess. Einnig er lögð fram umösgn lögfræði og stjórnsýslu dags. 11. ágúst 2008.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.