Laugavegur 61-63

Verknúmer : SN080427

140. fundur 2008
Laugavegur 61-63, breyting á deiliskipulagi reits 1.173.0
Lögð er fram umsókn Jóns Sigurjónssonar dags. 12. júní 2008 um breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 61-63 við Laugaveg skv. uppdrætti Arnars Sigurðssonar arkitekts mótt. 13. júní 2008. Í tillögunni felst að byggð verði viðbygging á súlum á baklóð norðan við húsið.

Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að fella niður grenndarkynningu þar sem breytingin hefur eingöngu áhrif á hagsmuni lóðarhafa.

214. fundur 2008
Laugavegur 61-63, breyting á deiliskipulagi reits 1.173.0
Lögð fram umsókn Jóns Sigurjónssonar dags. 12. júní 2008 um breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 61-63 við Laugaveg skv. uppdrætti Arnars Sigurðssonar arkitekts mótt. 13. júní 2008. Í breytingunni felst að byggð verði viðbygging á súlum á baklóð norðan við húsið.
Vísað til skipulagsráðs þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.