Reynisvatnsheiði, Orkuveita Reykjavíkur

Verknúmer : SN080421

139. fundur 2008
Reynisvatnsheiði, Orkuveita Reykjavíkur, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 12. júní 2008 vegna kæru á ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 29. nóvember 2007 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi vegna miðlunargeyma Orkuveitu Reykjavíkur á Reynisvatnsheiði er fól í sér stækkun lóðar undir miðlunargeyma og manar auk færslu og stækkunar byggingarreita. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 29. nóvember 2007 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi vegna miðlunargeyma Orkuveitu Reykjavíkur á Reynisvatnsheiði.