Norðlingaholt, Björnslundur

Verknúmer : SN080406

141. fundur 2008
Norðlingaholt, Björnslundur, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur um breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts skv. uppdráttum T.ark. þar sem afmörkuð er aðstaða fyrir útideild leikskóla í Norðlingaholti.
Samþykkt með vísan til a- liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.

212. fundur 2008
Norðlingaholt, Björnslundur, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Framkvæmda- og eignasviðs um breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts skv. uppdráttum T.ark. þar sem afmörkuð er aðstaða fyrir útideild leikskóla í Norðlingaholti.
Vísað til skipulagsráðs þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir og fullnægjandi umsóknargögn hafa borist embætti skipulagsstjóra.