Miðborgarvakt skipulagsráðs

Verknúmer : SN080307

134. fundur 2008
Miðborgarvakt skipulagsráðs, skipulagssýning í miðbænum
Skipulagssýning í miðbænum
Skipulagsráð samþykkir að sérstök skipulagssýning á öllum þeim fjölmörgu verkefnum sem í gangi eru í miðborginni, verði opnuð og standi opin í sumar. Skipulagsráð telur mikilvæg að gefa íbúum þannig öflugt tækifæri til að kynna sér allar tillögur og hugmyndur um uppbyggingu og umbætur í miðborginni og felur skipulagsstjóra að hefja undirbúning verkefnisins, þannig að sýningin geti opnað í júní.