Korngarðar 1-3

Verknúmer : SN080148

131. fundur 2008
Korngarðar 1-3, breyting á deiliskipulagi Skarfabakka
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 4. apríl 2008, vegna samþykktar borgarráðs 3. s.m. á afgreiðslu skipulagsráðs 19. f.m., um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka vegna lóðar nr. 1-3 við Korngarða.


128. fundur 2008
Korngarðar 1-3, breyting á deiliskipulagi Skarfabakka
Á fundi skipulagsstjóra 29. febrúar 2008 var lögð fram umsókn skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna, dags. 27. febrúar 2008, um breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka vegna lóðar nr. 1-3 við Korngarða skv. uppdrætti Ask arkitekta, dags. 22. febrúar 2008. Sótt er um breytingu á lögun og legu byggingarreits. Erindið er nú lagt fram að nýju ásamt nýjum uppdráttum mótt. 13. mars 2008.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu samkvæmt uppdráttum dags. 13. mars 2008.
Vísað til borgarráðs.


203. fundur 2008
Korngarðar 1-3, breyting á deiliskipulagi Skarfabakka
Á fundi skipulagsstjóra 29. febrúar 2008 var lögð fram umsókn skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna, dags. 27. febrúar 2008, um breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka vegna lóðar nr. 1-3 við Korngarða skv. uppdrætti Ask arkitekta, dags. 22. febrúar 2008. Sótt er um breytingu á lögun og legu byggingarreits. Einnig lögð fram bókun hafnarstjórnar frá 11. desember 2007. Erindinu var vísað til umfjöllunar austurteymis arkitekta og er nú lagt fram að nýju. Erindinu var frestað þar sem lagfæra þurfti uppdrætti. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt nýjum uppdráttum.
Vísað til skipulagsráðs.

202. fundur 2008
Korngarðar 1-3, breyting á deiliskipulagi Skarfabakka
Á fundi skipulagsstjóra 29. febrúar 2008 var lögð fram umsókn skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna, dags. 27. febrúar 2008, um breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka vegna lóðar nr. 1-3 við Korngarða skv. uppdrætti Ask arkitekta, dags. 22. febrúar 2008. Sótt er um breytingu á lögun og legu byggingarreits. Einnig lögð fram bókun hafnarstjórnar frá 11. desember 2007. Erindinu var vísað til umfjöllunar austurteymis arkitekta og er nú lagt fram að nýju.
Frestað.
Lagfæra þarf uppdrætti.


201. fundur 2008
Korngarðar 1-3, breyting á deiliskipulagi Skarfabakka
Lögð fram umsókn skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna, dags. 27. febrúar 2008, um breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka vegna lóðar nr. 1-3 við Korngarða skv. uppdrætti Ask arkitekta, dags. 22. febrúar 2008. Sótt er um breytingu á lögun og legu byggingarreits. Einnig lögð fram bókun hafnarstjórnar frá 11. desember 2007.
Vísað til umfjöllunar austurteymis arkitekta.