Lóðaúthlutanir

Verknúmer : SN080099

124. fundur 2008
Lóðaúthlutanir, fyrirheit til stúdenta og eldri borgara
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 1. febrúar 2008, vegna samþykktar borgarráðs 31. f.m. á að vísa tillögu um fyrirheit lóðaúthlutana til Stúdentaráðs Háskóla Íslands, Félagsstofnunar stúdenta, Félags eldri borgara og Samtaka aldraðra til skipulagsráðs og stjórnar eignasjóðs.

Jórunn Frímannsdóttir vék af fundi kl. 11:28.
Vísað til meðferðar skipulagsstjóra.
Ráðið leggur áherslu á að vinnslu málins verði hraðað eins og kostur er.