Iðnskólareitur, Skólavörðuholt

Verknúmer : SN080012

192. fundur 2009
Iðnskólareitur, Skólavörðuholt, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 10. nóvember 2009 kæra á ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 23. ágúst 2007 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts.
Úrskurðarorð: Ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 23. ágúst 2007, um breytt deiliskipulag Skólavörðuholts, Iðnskólareits, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda hinn 12. október 2007, er felld úr gildi.


135. fundur 2008
Iðnskólareitur, Skólavörðuholt, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram greinargerð lögfræði og stjórnsýslu dags. 15. maí 2008 vegna kæru mótt. 8. nóvember 2007, þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi Iðnskólareits.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

120. fundur 2008
Iðnskólareitur, Skólavörðuholt, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 18. desember 2007 ásamt kæru, mótt. 8. nóvember 2007, þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi Iðnskólareits.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.