Flutningshús, Nýlendureitur

Verknúmer : SN070809

134. fundur 2008
Flutningshús, Nýlendureitur, lóðarumsókn fyrir hús sem áður stóð við Laugaveg 74
Lagt fram bréf Fríðu Bragadóttur og Kristjáns S. Kristjánssonar dags. 22. apríl 2008 varðandi afgreiðslu skipulagsstjóra þann 29. febrúar 2008 á erindi hennar vegna lóðarumsóknar fyrir flutningshús. Einnig er lögð fram eldri umsögn skipulagsstjóra dags. 29. febrúar 2008.
Skipulagsráð staðfestir fyrri afgreiðslur skipulagsstjóra í málinu með vísan til þeirra forsendna sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

207. fundur 2008
Flutningshús, Nýlendureitur, lóðarumsókn fyrir hús sem áður stóð við Laugaveg 74
Lagt fram bréf Fríðu Bragadóttur og Kristjáns S. Kristjánssonar dags. 22. apríl 2008 varðandi afgreiðslu skipulagsstjóra þann 29. febrúar 2008 á erindi hennar vegna lóðarumsóknar fyrir flutningshús.
Vísað til skipulagsráðs.

201. fundur 2008
Flutningshús, Nýlendureitur, lóðarumsókn fyrir hús sem áður stóð við Laugaveg 74
Á fundi skipulagsstjóra var lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar (R07120064), dags. 19. des. 2007 ásamt erindi Fríðu Bragadóttur og Kristjáns Kristjánssonar frá 11. s.m., þar sem sótt er um lóð undir flutningshús sem stóð fyrrum að Laugavegi 74. Erindinu var vísað til skrifstofustjóra framkvæmdasviðs og skipulagsstjóra. Einnig lagður fram tölvupóstur umsækjanda, dags. 3. janúar 2008 og 11. febrúar 2008. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 29. febrúar 2008.
Umsögn skipulagsstjóra samþykkt

195. fundur 2008
Flutningshús, Nýlendureitur, lóðarumsókn fyrir hús sem áður stóð við Laugaveg 74
Á fundi skipulagsstjóra var lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar (R07120064), dags. 19. des. 2007 ásamt erindi Fríðu Bragadóttur og Kristjáns Kristjánssonar frá 11. s.m., þar sem sótt er um lóð undir flutningshús sem stóð fyrrum að Laugavegi 74. Erindinu var vísað til skrifstofustjóra framkvæmdasviðs og skipulagsstjóra. Einnig lagður fram tölvupóstur umsækjanda, dags. 3. janúar 2008. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Kynna formanni skipulagsráðs.

194. fundur 2007
Flutningshús, Nýlendureitur, lóðarumsókn fyrir hús sem áður stóð við Laugaveg 74
Lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar (R07120064), dags. 19. des. 2007 ásamt erindi Fríðu Bragadóttur og Kristjáns Kristjánssonar frá 11. s.m., þar sem sótt er um lóð undir flutningshús sem stóð fyrrum að Laugavegi 74. Erindinu var vísað til skrifstofustjóra framkvæmdasviðs og skipulagsstjóra. Einnig lagður fram tölvupóstur umsækjanda, dags. 3. janúar 2008.
Frestað.