Suðurhólar 10, Hólabrekkuskóli

Verknúmer : SN070803

122. fundur 2008
Suðurhólar 10, Hólabrekkuskóli, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 17. janúar 2008, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á afgreiðslu skipulagsráðs 9. s.m., varðandi auglýsingu á breyttu deiliskipulagi lóðar Hólabrekkuskóla.


120. fundur 2008
Suðurhólar 10, Hólabrekkuskóli, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Framkvæmdasviðs, dags. 19. des. 2007, um breytingu á deiliskipulagi lóðar Hólabrekkuskóla skv. uppdrætti, dags. 19. des. 2007. Í tillögunni er gert ráð fyrir boltagerði (sparkvöll með gervigrasi) á lóð Hólabrekkuskóla auk lóðarstækkunar og tilfærslu bílastæða.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu. Jafnframt er samþykkt að kynna tillöguna sérstaklega fyrir Hverfisráði Breiðholts.
Vísað til borgarráðs.



193. fundur 2007
Suðurhólar 10, Hólabrekkuskóli, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Framkvæmdasviðs, dags. 19. des. 2007, um breytingu á deiliskipulagi lóðar Hólabrekkuskóla skv. uppdrætti, dags. 19. des. 2007. Sótt er um leyfi fyrir boltagerði (sparkvöll með gervigrasi) á lóð Hólabrekkuskóla. Þar sem bílastæði eru samþykkt á umræddum stað er jafnframt sótt um lóðarstækkun til að fjölga stæðum.
Vísað til skipulagsráðs.