Framnesvegur 16

Verknúmer : SN070776

122. fundur 2008
Framnesvegur 16, breyting á deiliskipulagi Framnesreits 1.133.2
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Ólafssonar, dags. 10. des. 2007, um breytingu á deiliskipulagi Framnesreits vegna lóðar nr. 16 við Framnesveg skv. uppdrætti, dags. 27. nóvember 2007. Um er að ræða gerð kvista á húsið. Grenndarkynningin stóð frá 20. desember 2007 til og með 22. janúar 2008. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.



192. fundur 2007
Framnesvegur 16, breyting á deiliskipulagi Framnesreits 1.133.2
Lögð fram umsókn Sigurðar Ólafssonar, dags. 10. des. 2007, um breytingu á deiliskipulagi Framnesreits vegna lóðar nr. 16 við Framnesveg skv. uppdrætti, dags. 27. nóvember 2007. Um er að ræða gerð kvista á húsið.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Framnesvegi 14 og 18.