Sturlugata 2, Vísindagarðar

Verknúmer : SN070702

187. fundur 2007
Sturlugata 2, Vísindagarðar, (fsp) breytt deiliskipulag
Lögð fram tillaga ASK arkitekta dags. 8. nóvember 2007 varðandi breytt deiliskipulag lóðarinnar nr. 2 við Skerplugötu. Í breytingunni felst að markaður er nýr og stærri byggingarreitur bílgeymslu og kvöðum um eignarhald breytt.
Kynna formanni skipulagsráðs.

115. fundur 2007
Sturlugata 2, Vísindagarðar, (fsp) breytt deiliskipulag
Lögð fram umsókn og tillaga ASK arkitekta dags. 8. nóvember 2007 varðandi breytt deiliskipulag lóðarinnar nr. 2 við Skerplugötu. Í breytingunni felst að markaður er nýr og stærri byggingarreitur bílgeymslu og kvöðum um eignarhald breytt.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að fyrirspyrjendur láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við fyrirspurn sem gerir ráð fyrir stærri byggingarreit bílgeymslu neðanjarðar en gerir þá fyrirvara að gert verði grein fyrir fyrirhugaðri uppbyggingu á lóðinni í sömu tillögu. Tillagan verður auglýst þegar hún berst.