Álfabakki 8

Verknúmer : SN070584

122. fundur 2008
Álfabakki 8, breytt deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 10. janúar 2008, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á afgreiðslu skipulagsráðs frá 19. f.m., um breytingu á deiliskipulagi Mjóddarinnar vegna lóðarinnar nr. 8 við Álfabakka.


119. fundur 2007
Álfabakki 8, breytt deiliskipulag
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga Arkþing dags. 18. september 2007 að breytingu á deiliskipulagi Mjóddarinnar vegna lóðarinnar nr. 8 við Álfabakka. Í breytingunni felst tillaga um að stækka byggingarreit við kvikmyndahús. Tillagan var í auglýsingu frá 24. október 2007 til og með 7. desember 2007. Athugasemd barst frá Svæðisfélaginu í Mjódd, dags. 26. október 2007. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra, dags. 17. desember 2007.
Auglýst tillaga samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

Skipulagsráð beinir því til skipulagsstjóra að halda áfram vinnu við heildardeiliskipulag Mjóddar í samvinnu við Svæðisfélagið í Mjódd. Í deiliskipulaginu skal marka framtíðarsýn svæðisins sérstaklega hvað varðar aðkomu akandi, hjólandi og gangandi, þá skal sérstaklega hugað að fyrirkomulagi bílastæða. Gera skal ráð fyrir blandaðri uppbyggingu verslunar, þjónustu og íbúða eftir sem hingað til. Einnig skal hugað að grænu yfirbragði og gróðursetningu í deiliskipulagsvinnunni.


192. fundur 2007
Álfabakki 8, breytt deiliskipulag
Að lokinni auglýsingu er lögð fram tillaga Arkþing dags. 18. september 2007 að breytingu á deiliskipulagi Mjóddarinnar vegna lóðarinnar nr. 8 við Álfabakka. Í breytingunni felst tillaga um að stækka byggingarreit við kvikmyndahús. Tillagan var í auglýsingu frá 24. október 2007 til og með 7. desember 2007. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Svæðisfélagið í Mjódd, dags. 26. okt. 2007
Vísað til skipulagsráðs.

113. fundur 2007
Álfabakki 8, breytt deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 22. október 2007 vegna samþykktar borgarráðs frá 18. október 2007 á afgreiðslu skipulagsráðs 3. s.m. um auglýsingu á breyttu deiliskipulagi að Álfabakka 8.


109. fundur 2007
Álfabakki 8, breytt deiliskipulag
Lögð fram tillaga Arkþing dags. 18. september 2007 að breytingu á deiliskipulagi Mjóddarinnar vegna lóðarinnar nr. 8 við Álfabakka. Í breytingunni felst tillaga um að stækka byggingarreit við kvikmyndahús.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Skipulagsráð samþykkti jafnframt að upplýsa hagsmunaaðila á svæðinu um tillöguna með sérstakri tilkynningu.


181. fundur 2007
Álfabakki 8, breytt deiliskipulag
Lögð fram tillaga Arkþing dags. 18. september 2007 að breytingu á deiliskipulagi Mjóddarinnar vegna lóðarinnar nr. 8 við Álfabakka. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits við kvikmyndahús er stækkaður.
Vísað til skipulagsráðs.