Reitur 1.184.0, Bergstaðastrætisreitur

Verknúmer : SN070537

107. fundur 2007
Reitur 1.184.0, Bergstaðastrætisreitur, kærur, umsögn
Lagðar fram tvær kærur Þ.G. verktaka og Sighvats Snæbjörnssonar til úrskurðarnefndar skipulags og byggingamála, dags. 3. september 2007. Í annarri kærunni er gerð krafa um að fellt verði úr gildi deiliskipulag fyrir reit 1.184.0, Bergstaðastrætisreit og í hinni er þess krafist að nefndin felli úr gildi byggingarleyfi sem byggingarfulltrúi gaf út 14. ágúst 2007 fyrir Bergstaðastræti 16 og að framkvæmdir á lóðinni verði stöðvaðar. Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 6. september 2007.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt