Austurstræti 18

Verknúmer : SN070251

97. fundur 2007
Austurstræti 18, breyting á deiliskipulagi Kvosarinnar
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Ask arkitekta dags. 17. apríl 2007 að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 18 við Austurstræti. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja svalir á suðurhlið sjöttu hæðar hússins. Grenndarkynning stóð yfir frá 4. maí til 5. júní 2007. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

167. fundur 2007
Austurstræti 18, breyting á deiliskipulagi Kvosarinnar
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Ask arkitekta dags. 17. apríl 2007 að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 18 við Austurstræti. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja svalir á suðurhlið sjöttu hæðar hússins.
Vísað til skipulagsráðs.

161. fundur 2007
Austurstræti 18, breyting á deiliskipulagi Kvosarinnar
Lögð fram tillaga Ask arkitekta dags. 17. apríl 2007 að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 18 við Austurstræti. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja svalir á suðurhlið sjöttu hæðar hússins.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Pósthússtræti 16 og Austurstræti 20 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir