Njálsgata 50

Verknúmer : SN070224

116. fundur 2007
Njálsgata 50, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 13. nóvember 2007 vegna kæru á synjun byggingarfulltrúa 15. ágúst 2006 á umsókn um að íbúð fáist samþykkt í kjallara hússins að Njálsgötu 50. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.


94. fundur 2007
Njálsgata 50, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 29. mars 2007 ásamt kæru, dagsettri 14. september 2006, þar sem kærð er synjun byggingarfulltrúa 15. ágúst 2006 á umsókn um að íbúð fáist samþykkt í kjallara hússins að Njálsgötu 50. Einnig lögð fram umsögn byggingarfulltrúa dags. 11. maí 2007.
Umsögn byggingarfulltrúa samþykkt.