Flugvöllur 106748, Fjarðaflug

Verknúmer : SN070211

140. fundur 2008
Flugvöllur 106748, Fjarðaflug, kæra, umsögn
Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar dags. 26. maí 2008 vegna kæru Valgeirs Kristinssonar hrl., f.h. Flugskóla Helga Jónssonar þar sem þar sem kærð er ákvörðun skipulagsráðs frá 8. nóvember 2006 að veita bráðabirgðaleyfi til að setja niður gámaeiningu vegna flugafgreiðslu á lóð Flugskóla Helga Jónssonar.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

158. fundur 2007
Flugvöllur 106748, Fjarðaflug, kæra, umsögn
Lagt fram bréf Valgeirs Kristinssonar hrl. f.h. flugskóla Helga Jónssonar, dags. 13. mars 2007, þar sem mótmælt er bráðabirgðaleyfi skipulagsráðs frá 8. nóvember 2006 til handa Fjarðaflugi til að setja niður gámaeiningu vegna flugafgreiðslu á lóð flugskóla Helga Jónssonar.
Vísað til umsagnar hverfisarkitekts og lögfræði/stjórnsýslu.