Kópavogur, stofnlögn gegnum Heiðmörk

Verknúmer : SN070201

88. fundur 2007
Kópavogur, stofnlögn gegnum Heiðmörk, úrskurður úrskurðarnefndar
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 22. mars 2007 vegna kæru Náttúruverndarsamtaka Íslands á ákvörðun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 7. mars 2007 um að veita framkvæmdaleyfi til lagningar vatnsveitu frá Vatnsendakrikum um Heiðmörk innan lögsögu Reykjavíkurborgar. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ennfremur lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 21. mars 2007.