Skildinganes 44

Verknúmer : SN070045

87. fundur 2007
Skildinganes 44, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram tillaga Arkþings dags. 22. janúar 2007 að breytingu á deiliskipulagi Skildinganess m.a. vegna stækkunar á byggingarreit og hækkunar á hluta þaks vegna Skildinganess 44. Grenndarkynning stóð yfir frá 13. febrúar til 13. mars 2007. Athugasemd barst frá Ágústu Guðmundsdóttur, dags. 12. mars 2007. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2007.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa.

156. fundur 2007
Skildinganes 44, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram tillaga Arkþings dags. 22. janúar 2007 að breytingu á deiliskipulagi Skildinganess m.a. vegna stækkunar á byggingarreit og hækkunar á hluta þaks vegna Skildinganess 44. Grenndarkynning stóð yfir frá 13. febrúar til 13. mars 2007. Athugasemd barst frá Ágústu Guðmundsdóttur, dags. 12. mars 2007. Lögð fram samantekt hverfisarkitekts dags. 16.03.07.
Vísað til skipulagsráðs.

149. fundur 2007
Skildinganes 44, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Arkþings dags. 22. janúar 2007 að breytingu á deiliskipulagi Skildinganess m.a. vegna stækkunar á byggingarreit og hækkunar á hluta þaks vegna Skildinganess 44.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Skildinganesi 27, 29, 31, 42, 46, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.