Hólmvað 54-68

Verknúmer : SN070019

85. fundur 2007
Hólmvað 54-68, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Jóns Guðmundssonar f.h. Pálmar ehf., dags. 5. janúar 2007, að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 54-68 við Hólmvað. Einnig lagt fram samþykki meðeigenda og aðliggjandi lóðarhafa, dags. 9. janúar 2007. Kynning stóð yfir frá 25. janúar til og með 22. febrúar 2007. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð.

80. fundur 2007
Hólmvað 54-68, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Jóns Guðmundssonar f.h. Pálmar ehf., dags. 5. janúar 2007, að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 54-68 við Hólmvað. Einnig lagt fram samþykki meðeigenda og aðliggjandi lóðarhafa, dags. 9. janúar 2007.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum á svæðinu.

147. fundur 2007
Hólmvað 54-68, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Jóns Guðmundssonar f.h. Pálmar ehf., dags. 05.01.07, að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 54-68 við Hólmvað. Einnig lagt fram samþykki meðeigenda og aðliggjandi lóðarhafa, dags. 09.01.07.
Vísað til skipulagsráðs.