Hraunbær 123

Verknúmer : SN070010

87. fundur 2007
Hraunbær 123, umsögn vegna kæru, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 15. mars 2007 vegna kæru á synjun skipulagsráðs frá 9. febrúar 2005 á tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina nr. 123 við Hraunbæ vegna loftnetsmasturs. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.


79. fundur 2007
Hraunbær 123, umsögn vegna kæru, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 3. janúar 2007, vegna kæru Bandalags Íslenskra Skáta á synjun skipulagsráðs frá 9. febrúar 2005 á tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina nr. 23 við Hraunbæ vegna loftnetsmasturs.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.