Öskjuhlíð

Verknúmer : SN060703

71. fundur 2006
Öskjuhlíð, breyting á deiliskipulagi vegna lóða O.R.
Lögð fram umsókn Yngva Þórs Loftssonar f.h. Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 26. október 2006, um breytingu á deiliskipulagi Öskjuhlíðar til að afmarka tvær lóðir Orkuveitu Reykjavíkur við Bústaðaveg 18 (dælustöðvarhús) og Varmahlíð 1 (Perlan).
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð. Ekki talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa og Reykjavíkurborgar.

138. fundur 2006
Öskjuhlíð, breyting á deiliskipulagi vegna lóða O.R.
Lögð fram umsókn Yngva Þórs Loftssonar f.h. Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 26.10.06, um breytingu á deiliskipulagi Öskjuhlíðar til að afmarka tvær lóðir Orkuveitu Reykjavíkur við Bústaðaveg 18 (dælustöðvarhús) og Varmahlíð 1 (Perlan).
Kynna formanni skipulagsráðs.