Úlfarsárdalur

Verknúmer : SN060677

78. fundur 2006
Úlfarsárdalur, endurskoðun austurhluta fyrsta áfanga
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulagshöfunda, VA arkitekta, að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals, dags. 12. október 2006. Auglýsing stóð yfir frá 1. nóvember til og með 13. desember 2006. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

Fulltrúar Samfylkingarinnar; Dagur B. Eggertsson og Stefán Benediktsson og fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs; Svandís Svavarsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.


71. fundur 2006
Úlfarsárdalur, endurskoðun austurhluta fyrsta áfanga
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 27. október 2006, varðandi samþykkt borgarráðs 26. þ.m. á afgreiðslu skipulagsráðs 18 s.m., varðandi auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi austurhluta 1. áfanga Úlfarsárdals.


69. fundur 2006
Úlfarsárdalur, endurskoðun austurhluta fyrsta áfanga
Lögð fram tillaga skipulagshöfunda, VA arkitekta, að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals, dags. 12. október 2006.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.
Vísað til borgarráðs.
Jafnframt samþykki ráðið að kynna auglýsta breytingu sérstaklega fyrir lóðarhöfum í vesturhluta 1. áfanga.

Fulltrúar Samfylkingarinnar; Dagur B. Eggertsson og Stefán Benediktsson og fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs; Svandís Svavarsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.


136. fundur 2006
Úlfarsárdalur, endurskoðun austurhluta fyrsta áfanga
Lögð fram breytingartillaga skipulagshöfunda, dags. 12.10.06.
Kynna formanni skipulagsráðs.