Sléttuvegur

Verknúmer : SN060674

101. fundur 2007
Sléttuvegur, deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 12. júlí 2007, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á afgreiðslu skipulagsráðs frá 11. júlí 2007 um samþykkt deiliskipulags svæðis neðan Sléttuvegar.


100. fundur 2007
Sléttuvegur, deiliskipulag
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Studio Granda dags. 10. febrúar 2007 að deiliskipulagi svæðis neðan Sléttuvegar. Í tillögunni er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á svæðinu. Tillagan var auglýst frá 9. maí til og með 20. júní 2007. Athugasemdir bárust frá Félagsstofnun Stúdenta og Stúdentaráði dags. 1. júní 2007, Guðrúnu Pálsdóttur, dags. 20. júní 2007, undirskriftarlisti 92 íbúa, mótt. 20. júní 2007, THG arkitektar, dags. 21. júní 2007.
Einnig lögð fram umsögn umhverfissviðs, dags. 24. maí 2007, um undanþágu frá hljóðvist, sem samþykkt var á fundi umhverfisráðs þann 1. júní 2007. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 10. júlí 2007.
Auglýst tillaga samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.


90. fundur 2007
Sléttuvegur, deiliskipulag
Lögð fram tillaga Studio Granda dags. 10. febrúar 2007 að deiliskipulagi svæðis neðan Sléttuvegar. Í tillögunni er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á svæðinu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu að deiliskipulagi.
Vísað til borgarráðs.


87. fundur 2007
Sléttuvegur, deiliskipulag
Lögð fram tillaga Studio Granda að deiliskipulagi svæðis neðan Sléttuvegar.

Birgir H. Sigurðsson tók sæti á fundinum kl. 10:14
Ólafur Bjarnason tók sæti á fundinum kl. 10:16

Kynnt. Frestað.

76. fundur 2006
Sléttuvegur, deiliskipulag
Lögð fram forsögn skipulagsfulltrúa dags. nóvember 2006.
Forsögn samþykkt.

141. fundur 2006
Sléttuvegur, deiliskipulag
Lögð fram forsögn skipulagsfulltrúa dags. nóvember 2006.
Kynna formanni skipulagsráðs.

71. fundur 2006
Sléttuvegur, deiliskipulag
Lögð fram forsögn skipulagsfulltrúa dags. nóvember 2006.
Kynnt.

139. fundur 2006
Sléttuvegur, deiliskipulag
Lögð fram drög að forsögn skipulagsfulltrúa dags. nóvember 2006.
Kynna formanni skipulagsráðs.

136. fundur 2006
Sléttuvegur, deiliskipulag
Lögð fram drög ð forsögn skipulagsfulltrúa dags. október 2006.
Kynna formanni skipulagsráðs.